Spilareglur

 

Hér til hliðar sjáið þið reglur í hinum ýmsu kjuðaíþróttum.

 

 

Hobbyroom reglan

Algengt er að þegar menn koma saman í pool að þá er deilt um hvaða reglu  eigi að nota.  Við einföldum málið og setjum fram nýja reglu sem byggist á því algengasta sem notað hefur verið hér á landi.

 

Hobbyroom reglan

Við einföldum málin.. ein samræmd regla fyrir pool.

 

1.Leikur byrjar á því að kúlur eru settar upp með þríhyrning.  Fremst í þríhyrningnum skal vera einlit kúla og svo einlit og tvílit sitt í hvoru horninu á móti.  “8” er í miðjunni.

2.Hvítu kúlunni er komið fyrir á hvíta punktinum (á miðju hins enda borðsins).

3.Sá sem brýtur fyrstur getur skotið hverju sem er niður.  Litur ræðst þó ekki í broti heldur fyrsta skoti í leik.  Það þýðir að ef sá sem brýtur hitti lit niður getur hann tekið ákvörðun eftir það hvort hann tekur lit eða tvílit.   Nái hann ekki næstu niður getur næsti leikandi aftur ráðið hvort hann vilji lit eða tvílit og svo koll af kolli þar til annar hefur náð sinni niður og þá fyrst eru menn með fastan lit.

4.Leikurinn gengur svo út á að koma sínum lit niður og þá fyrst meiga menn reyna við svörtu “8”.

5.Sá sem er þá að reyna við “8” verður að tilgreina hornið sem hún á að fara niður í fyrirfram.

Gleymist það og sú svarta fer niður hefur viðkomandi tapað leiknum.  Fari hvíta kúlan niður

með svörtu þ.e. í eithvert gat þá hefur viðkomandi leikmaður einnig tapað leiknum.  Hitti

leikmaður ekki í svörtu kúluna þegar hann á að gera það er viðkomandi búinn að tapa.  Sama

gildir um ef hann hittir annan lit á undan.

6.Hitti leikmaður í miðjum leik ekki litinn sinn fyrstan eða skjóti hvítu niður má næsti leikmaður

stilla upp hvar sem er á borðinu og skjóta í hvaða átt sem honum sýnist. 

7.Hitti leikmaður kúlu andstæðingsins niður þá er henni ekki stillt upp aftur heldur látin vera

niðri.  Hitti leikmaður fyrst í kúlu andstæðingsins en nái síðan sinni niður á andstæðingurinn

bara að stilla upp hvítu og gera þar sem honum sýnist en fær ekkert auka skot, eða ávinnur sér neinn anna rétt.

 

 

501 and 301 -  Dart leikir

Vinsælasta pílukeppnin er nefnd "501 up". Þetta er einfaldasta pílukeppnin. Hver leikmaður byrjar með 501 stig og skiptist á að kasta 3 pílum hver. Stig eftir hvert 3 pílna skot eru reiknuð og síðan dregin frá stigafjölda hvers leikmanns. 

Stigagjöf er eftirfarandi:

Rauði hringurinn (bullseye): 50 stig

Græni hringurinn (outer ring): 25 stig

Píla í ysta hringinn (rautt/grænt): tvöfalt það númer sem þú hittir í 

Píla í næst ysta hringinn (rautt/grænt: þrefalt það númer sem þú hittir í   

 

Sá vinnur er hefur náð upphaflegum  stigum (501) niður í nákvæmlega núll. Eina ögrunin er sú að síðasta pílan fyrir sigur verður að lenda í ysta hring (tvöfalt) eða í rauða hringinn.              

Ef leikmaður endar í einu stigi eða fer fyrir neðan núll, er það kast ónýtt, þ.e. stigin standa eins og þau voru fyrir þetta kast, þ.e. ef leikmaður hefur 32 stig, kastar 16 með fyrstu pílu og 15 í þeirri seinni, eru þetta kast ónýtt og leikmaður hefur enn 32 stig. Með þetta í huga samt sem áður þarf leikmaður ekki að kasta öllum þremur pílunum til að vinna, hann getur unnið með fyrstu eða annarri pílu.

Það skiptir því máli að vera sniðugur að telja út stigin til að auðvelda síðasta sprettinn, þar sem skylda er að ná vinning með því að skjóta í ysta hringinn(tvöfalt) eða rauða hringinn(bullseye).

"Splitting the 11" er regla notuð í stað þess að leikur sé alveg ónýtur ef leikmaður endar með 1. Þá þarf leikmaður að skipta 11 með því að henda pílunni á milli þeirra talna er mynda 11. Þetta er  mjög snúið.

301 er nákvæmlega eins leikur, nema leikmenn byrja með 301 stig.

Endilega sendið okkur fleiri reglur.