Hobbyroom

Sólvallargata 48
Sími 565-5200

hobbyroom@hobbyroom.is

 

Opnunartími

Opið frá 14-18 alla virka daga

 

 

Liðlegheit 

Sendið endilega fyrirspurnir eða pantanir á:

 hobbyroom@hobbyroom.is

 Og við svörum um hæl!

 

Hobbyroom var stofnað árið 2007 af þeim bræðrum Elíasi og Bjarna Þorvarðarsonum. Verslunin opnaði í Garðabænum og var afsprengi Netverslunarinnar Poolbord.is sem Jóhannes Birgir Jóhannesson hafði þá rekið um árabil.  Verslunin opnaði í rúmlega þúsund fermetra húsnæði í Garðabæ.  Árið 2008 eftir bankahrunið flutti verslunin í 200 fermetra húsnæði að ármúla 38 og er rekin þar í dag. Það var svo árið 2010 sem Jóhannes Birgir kaupir verslunina aftur og heldur þar með áfram rekstri Hobbyroom.  Jóhannes er margfaldur íslands, norðurlanda og evrópumeistari í snóker og hefur gríðarlega mikla reynslu af pool og snókervörum.  Vöruval verslunarinnar byggir á hágæða vörum og vörumerkjum víðsvegar frá Evrópu.

Hobbyroom sérhæfir sig í skemmtilegum vörum og leiktækjum fyrir heimili sem kunna að hafa gaman saman.